Karma is a bitch

Sýrukerið

14.11.2007 11:40:13 / kalli

ATH

Ég á ekki afmæli lengur :D....
En íbúðin er samt til og fluttningur er planaður helgina 24 og 25 nóv :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 17:57:29 / kalli

It's my birthday :D





Jæja þá er maður skriðinn í 25 ár (hálf fimmtugt) styttist alltaf í eftirlauna hehe
 

En ég var víst búinn að lofa blogga eitthvað hérna handa ykkur sem kíkið ennþá hingað inn. Og hver veit nema ég nái að segja ykkur einhverjar fréttir... 

Sumarið hjá mér er bara búið að vera nokkuð gott. Er búinn að vera vinna mikið. Var að vinna í breytingum á Pennanum. Var svo látinn yfir í seinni hlutanum sem var að opna núna fyrir stuttu....endilega fara niður eftir og skoða, versla og gera eitt vitlaust ;) Seinasti dagurinn var heldur betur tekinn með trukki....var að vinna í 25 tíma samfleytt!! En það var bara hressandi.....og niðurstaðan eftir það er að orkudrykkir virka ekki jack shit!!! Svo ætlar Penninn að halda party fyrir iðnaðarmennina núna á næstunni...það verður sko tekið á því! 

En svo er líka eitt og annað að fara gerast. Ætla reyna berjast við að nefna það allt hérna á eftir en eins og vanalega þá á ég örugglega eftir að gleyma einhverju....ég bæti því þá bara við seinna :D 

Það sem er svona helst á dagskrá er að ég er búinn að fjárfesta í 3 herbergja íbúð sem ég er að breyta núna. Er að rífa allt af gólfum. Set eikar parket á allt nema baðið, þar verða flísar. Nýja innréttingu á baðið, nýtt bað, vask og blöndunartæki. Legg síma og loftnet í bæði herbergi. Mála og sparsla allt. Næturlýsingu í baðplötu og ofaní parketið og fullt fleira :D 

Svo einhvern tíman á næstunni (síðasta lagi nóv) ætlar hún Begga mín að flytja til mín og REYNA búa með mér hehehe...hún veit svo innilega ekki hvað hún er að kalla yfir sig hahaha nei nei ég er draumur :klikk: 

Svo ætlum við Siggi að fara aðra tónleika ferð suður núna helgina 8 og 9 sept. Núna er það Chris Cornell sem á að fá að njóta nærveru okkar hehe :D Það verður magnað.  

Skólinn er svo byrjaður. Útskrifast svo (vonandi hehe) eftir þessa önn. 

Planið er svo að fara út til Riga í Lettlandi með Rafmönnum. Þetta er víst árshátíðin hjá okkur, um að gera reyna taka vel á því þá :D 

Þelamerkur boltinn byrjar svo næstu helgi.....það verður magnað!!! 

....ég er viss um að það var eitthvað meira, en það kemur þá bara seinna :D 

Ætlar svo að reyna setja inn myndir frá framkvæmdunum á íbúðinni, allt að gerast þar ;Þ 

Já svo get ég endað þetta á því að segja hvað ég fékk í afmælisgjöf:

Gasgrill, Ryksugu, Bol, Cintamani jakka, miða á Chris Cornell, Vöfflujárn, Handþeytara, pening... En ætla segja þetta gott í bili!

Ég heimta svo comment á þetta frá öllum fyrst ég ómakaði mig við að blogg svona mikið fyrir ykkur.
 Svo er auðvitað öllum frjálst að koma í íbúðina og hjálpa við þetta stórverk hehe ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 14:39:14 / kalli

ATH



Nýtt blogg er væntanlegt
:D...ég lofa

Þannig að þið getið slakað á öllum líflátshótunum og svona hehe
En það er allavega alveg nóg að gerast og svona...stay tune'd nefapar!! :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 16:59:37 / kalli

I'm back

Jæja litlu hommínur, það er víst kominn tími á eitt blogg eða svo...

En svona fljótt á litið þá hef ég ekki hugmynd um hverju ég eigi að ljúga að ykkur núna. Maður er bara búinn að vera vinna eins og enginn sé morgundagurinn.....og jafnvel að það sé enginn dagur eftir þann dag :D nei nei nú er maður kominn í ruglið.

Bíladagar eru allavega ný afstaðnir...og verð bara að segja að þetta voru þeir slökustu sem ég hef upplifað. Ætla byrja á því að kasta kúk á bílaklúbbinn sem má sjúga 30 lítra af koppafeiti. Burn outið var prump. Götuspyrnan er löngu sprungin með þetta pínu pínu litla svæði sem þeir eru með þetta á.....svo ekki sé minnst á gæslumenn á power trippi...en áttu í raun allir að fara beint í lakið. Og svo er ég bara ekki dómbær á bílasýninguna af því að ég bara fór ekki...gaman af því! En ég ætla innilega að vona að það verði komin betri aðstaða fyrir þetta á næsta ári....annars mæti ég ekki.

En það var líka ekki mikið djammað þessa blessuðu helgi. Fór út á föstudeginum með Hólmari, Ingó, Madda og Hödda (frá eyjum) Fórum á flesta staðina og ekki beint hægt að segja að þetta hafi verið eitthvað súper...en samt alveg ágætt.

En svo er ég búinn að kaupa mér nýjann síma :D gaman af því

Er enn að bíða eftir að það komi á hreint hvenær og vhert Rafmenn séu að fara. Það er víst planið að fara eitthvað út í kringum sept eða okt.

Mæli svo með því að allir kíkji niðrí Pennann/Te og Kaffi alveg mögnuð verslun það...og geggjað flott líka ;Þ

En er að hugsa um að segja þetta gott í bili
Ælta að lokum að mæla með dreng sem er að gera góða hluti. Hann kallar sig Siggi Lauf og er sönur aðal predikarans á Omega...hefur samt ekki alveg sömu sýn og pabbi sinn á kallinum á himnum hehe tékkið á þessu og lögunum "Í Frelsarans Nafni" og "Vogur"

www.myspace.com/siggilauf

seee you fokkers :klikk:

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 22:14:36 / kalli

You'll never walk alone

 

When you walk through a storm
Hold your head up high
And don't be afraid of the dark
At the end of the storm
Is a golden sky
And the sweet silver song of a lark

Walk on through the wind
Walk on through the rain
Tho' your dreams be tossed and blown
Walk on, walk on
With hope in your heart
And you'll never walk alone
You'll never walk alone!


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 12:29:34 / kalli

Sama hvað gerist...ég stend með mínum mönnum

....You will never walk alone!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:52:53 / kalli

Booooring

Ohh mig er búið að kvíða fyrir þessu heavy lengi...en ég var víst búinn að lofa bloggi í dag þannig að ég verð að standa við það!

Annars hef ég eiginlega bara voða lítið að segja....alveg gjörsamlega tómur :/

En maður er allavega búinn með prófin og svona og það gekk bara ágætlega...

Loftstýringar 7
Rafmagnsfræði 8
Raflagnateikning 8
Lýsingartækni 8

Svo var dimmiteringin bara geggjuð, löggan hafði afskipti af okkur. Svo var líka ein ung stúlka sem hefur örugglega einhvern tíman verið betri í skapinu, sem grýtti glasi í átt að okkar af 8 hæð takk fyrir :D....já karlmaðurinn á heimilinu greinilega ekki að standa sig þar...eða kannski allt batteríslaust  :haha:

En svo er bara vinnan og sumarið farmundan...og mér skilst vera nóg að gera þá. Tvíbókaður 07.07.07....maður verður einhvern veginn að redda því. Svo er sumarbústaðarferð í bústaðinn sem ég var með á leigu seinustu versló, ein ferð til Vestmannaeyja (samt ekki á þjóðhátíð), örugglega einhverja veiðiferðir og fl.

Tölvan mín bilaði svo fyrir svona mánuði....ég var svo ekki að nenna gera við hana þannig að ég sleppti því að kveikja á henni í hálfan mánuð held ég...svo ætlaði ég að fara fixa þetta...en þá er hún bara eins og ný :D snilld

Svo var mér tilkynnt fyrr í vikunni af mínum yndislega bróður og andstæðing að það væri ekki bolti komandi laugardag (eða í gær) Jújú auðvitað trúði ég honum og ætlaði bara að slaka á og svona...svo rétt áður en boltinn átti að byrja þá hringir dýrið hann bróðir minn og spyr hvort ég ætli ekki að mæta. Rétt áður en þetta átti sér stað var ég að gúffa í mig 2 roastbeef samlokum...mjög gott svona rétt fyrir fótboltatíma. En það kom sko ekki af sök. Því kallinn var bara í því að spæna upp gólfið og skilja þessa gömlu hrúta eftirí reyknum hehehe :D gaman af þessu.....ætla fá mér 3 samlokur næst!

En svo að lokum vill ég minna á leikinn á miðvikudaginn...Liverpool - Ac Milan
Ef illa fer þá kem ég ekki til með að blogg það sem eftir er sumars....
En ef vel fer þá verður kátt í höllinni ;)

En segjum þetta gott í bili ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:10:08 / kalli

Aðeins undir veðrinu




Jæja þetta verður ekki langt.....

Maður er víst búinn að næla sér í svona líka skemmtileg veikindi alveg á besta tíma!!! Síðustu dagarnir í skólanum að renna upp og allt að ske!

Við Hólmar komumst að niðurstöðu um af hverju ég hafi orðið veikur....ég fór nebblega EKKI til hans og Guddu um helgina og fékk mér þar af leiðandi EKKI bjór með þeim....líkaminn varð bara fyrir svo miklu sjokki að hann brotnaði bara niður :D

Ég fékk mér ekki neinn bjór um helgina...aldrei þessu vant :D Var bara voða stilltur og svona ;)...ekki misskilja, helgin var samt góð sko :D

En já segjum þetta gott í bili....það væri reyndar ekki verra að hafa eitt stykki hjúkku núna hehehehe :haha:

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 21:58:17 / kalli

Snilldar helgi og geggjaði vinir ;)


Guðrún og Ég á laugardaginn....maður var aaaaðeins búinn að fá sér hehe :D

Jamm nenni ekki að blogga mikið....eins og vanalega en sjáum til hvert þetta fer ;)

Ég vill byrja á að óska Hólmari og Guddu til hamingju með þann áfanga að hafa haldist saman í heil 5 ár...uss þetta er bara Duracel...endist, endist, endist og endist hehehe ;) Þið eruð geggjuð og æðislegir vinir.....hvar væri ég án ykkar ;)

Þau buðu mér í mat í gær sem er ekki hægt að flokka undir neitt annað en FOKKING SNILLD!!! :D
Gudda smellti á nokkrar pizzur og fólkið gjörsamlega streymdi að....þarna vorum við...Ég, Hólmar, Guðrún, Stína Hljóðkútur, Maggi "fretari" og Binni "svekkjandi" Steramassi hehehe
Þetta fólk fór alveg á kostum og ég hef bara sjaldan hlegið jafn mikið hehehe...."svekkjandi"...hehehe :haha: takk fyrir geggjað kvöld!!!!

Helgin var bara sóða góð....drakk aðeins heima hjá Hólmari á föstudaginn.....svo var aðeins meira tekið á því heima hjá honum á laugardeginum. En ég tek það skýt fram að ég ætlaði aldrei út eða niðrí bæ....en tek það svo sem líka fram að ég sé ekkert eftir því að hafa gert það hehe :D
En ætla ekkert að fara nánar út í þetta hérna ;)

Nenni samt ekki meiru, heyrumst bara ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 13:27:32 / kalli

Breaking the waves


Jamm mig langar að deila með ykkur einu lagi sem mér finnst geggjað. Alltaf gaman þegar íslensk bönd ná að gera eitthvað af viti. Þetta lag er fínt í upphaflegri mynd en þetta er unplugged útgáfa sem er reyndar betri.

Þetta er sem sagt lagið Breaking the waves með hljómsveit sem heitir Dikta...
http://www.youtube.com/watch?v=onUnKrelDag

En það er komin smá pressa á að koma með eitt blogg eða svo....en ég hef annars bara voða litla hugmynd um hvað ég ætti svo sem að segja.

En vill samt koma inná eitt, þegar ég skrifa þetta blogg þá eru einhver 90.stk búin að skoða þetta og heimsóknirnar voru eitthvað um 130 í gær......hvað er málið? Ég efast um að ég eigi svona marga vini..hvað þá óvini :D Ég vill fara sjá fleiri comment og kvitt í gestabókina ef þetta heldur svona áfram!!!!

En annars voru páskarnir bara ágætir, frekar í rólegri kantinum. Fékk mér 3 í glas og þá var bara setið í heimahúsi í rólegheitum og svona....hápunkturinn var kannski þegar kertastjakinn hjá Hólmari tók uppá því að springa í tætlur uppúr þurru hehe :D furðulegt helvíti! Annars var lítið krassandi sem skeði minnir mig :D....ég var alveg ótrúlega stilltur ;)

Svo fórum við Jón um daginn með hólkana uppá ruslahauga og vorum að æfa okkur að skjóta á "sitjandi bráð"....fórum bara með 20 flöskur og plöffuðum á þær. Gekk bara mjög vel...ekki eitt skot til spillis. Og nú ætlum við að fara fjárfesta í leirdúfukastara til að getað skotið á eitthvað á flugi...það verður magnað.

Svo styttist alltaf í dimmiteringu :D Við verðum í prestabúningum skilst mér og það verður sko tekið á því. Það eru 3 menn í eldri kantinum sem ætla ekki að vera með okkur og þeir verða sko teknir í gegn....bílar eggjaðir og eitthvað næs!...svo ég tali nú ekki um kennarana hehehehe :klikk: Það verður engin syndaraflausn þar í gangi...

En eins og er þá er ég hérna heima að reyna losa mig við smá verk sem ég fékk í bakið...búinn að vera duglegur að gera jógaæfingarnar og svona ;)
Svo veit ég ekki alveg hvað ég geri um helgina...er að pæla í að fara á hokkíleik á föstudaginn og kannski líka á laugardaginn ef ég skildi þurfa sleppa bolta útaf bakinu...er einhver með???

En jæja segjum þetta gott í bili....og ég vill sjá comment og kvitt í gestabókina takk fyrir!!!!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 18:12:37 / kalli

Fæst orð bera minnsta ábyrgð :D


Ég held að þessi mynd hérna fyrir ofan og heitið á færslunni lýsi þessari helgi bara nokkuð vel :D....en þrátt fyrir allt þá var þetta bara snilld!!!

Þetta byrjaði allt heima hjá Helga bró þar sem við sáum nokkrir og vorum að horfa á landsleikina sem voru þennan dag. Svo seinna um kvöldið hafði Ingó samband og bauð mér til sín. Ég var búinn með nokkra þá og tók þá skemmtilegu ákvörðun að hlaupa til Golla....(ATH Helgi bró á heima fyrir utan bæinn takk fyrir hehehe)...þarna var ég hlaupandi á þjóðveg 1 með bjór í annarri sem freyddi eins og andskotinn á öllu skoppinu og með buxurnar á hælunum hehehe

Svo kem ég til Golla þar sem er eitthvað Gellu-nesti party í gangi...stoppaði þar eitthvað takmarkað...eftir smá stund þá röltum við Golli til Hólmars...

Og þar er ekki að spyrja að því...hjá Hólmari er alltaf gott fólk :D ATH...það var þar sem minnið byrjar að vera svolítið loðið....og ástæðuna fékk ég að vita í dag. Fyrir daginn í dag þá hélt ég bara að ég hafi verið í mínum bjór...en það kom svo í ljós að Hólmar andskoti þurfti endilega að bjóða mér eitthvað vodka sull hehehe

En svo var okkur skutlað niðrí Sjalla...fyrir daginn í dag hélt ég því fram að ég hafi bara verið á dansgólfinu allan tímann og ekkert farið upp eða neitt....en svo var mér tjáð annað í dag. :D
Það litla sem ég man sjálfur var að ég fór inn dansaði við vinkonu mín, Sálin var að spila og Hólmar, Guðrún og Ingó voru þarna....punktur!
En á einhverjum tímapunkti fór ég með Hómar og Ingó á barinn og bauð þeim bjór...eða eitthvað af barnum allavega :D
En það verður bara að viðurkennast að ég var allt of fullur þarna....og það er allavega álit Hólmars að hann hafi aldrei séð mig svona fullan.....enda er ég líka búinn að vera taka það út núna í gær og í dag.

Ég er allavega þokkalega sáttur með þetta allt og sé ekki eftir neinu...hvað svo sem aðrir segja :D


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 18:39:15 / kalli

Þá er komið að því....

Jamm Sálin er að bresta á :D Sálin er í Sjallanum á morgun. Vinkona mín þurfti endilega að segja mér frá þessu fyrir svona mánuði og ég er búinn að vera gera í mig síðan hehe :D
En það er ekki alveg ákveðið hvað ég geri fyrir ballið...en það kemur allt í ljós. Ég er reyndar búinn að vera senda þessum svokölluðu "vinum" mínum sms um hvort þeir ætli ekki að mæta...en það er eitthvað minna um svör sem er alls ekki nógu gott.....einhverra hluta vegna dettur mér lagið sem er í Jackass2 í hug í sambandi við þetta mál...(Turbonegro - All my freinds are dead) hummm.....

Annars er svo sem ekkert mikið merkilegt að frétta....

Ég er ekki vanur að opna launaumslögin sem ég fæ...eða þá bara póst almennt, en gerði það núna í vikunni þegar ég var að baksa við skattaskýrsluna...og viti menn! Ég var bara búinn að fá launahækkun.....og það bara nokkuð rausnarlega takk fyrir og bingó :D alltaf gaman af svona.....meiri ástæða til að hafa gaman um helgina ;)

Svo langaði mig líka að deila með ykkur atviki sem átti sér stað hérna fyrr í vikunni sem varð til þess að ég fór að endurskoða hversu góð sál maður virkilega er...
Þannig er mál með vexti að það var hringt dyrabjöllunni hérna. Ég fór til dyra og þá var lítil stelpa, svona ca 12 ára, að biðja um peningastyrk til sundfélagsins Óðins. Hún var voða saklaus, feimin og hálf stamaði við þessa bón sína....þessi litlu hvolpa augu störðu á mig eins og hún hefði ekki fengið að borða í rúma viku....og eins og við alla aðra sölumenn eða eitthvað svona lið sem kemur á dyrnar hjá manni þá sagði ég bara "nei takk"!
Ég fæ þá svona lítið bros til baka og "ok, takk samt..."

Eftir að hafa lokað hurðinni þá bara fékk ég fyrir hjartað....mér leið svo illa að hafa sagt nei við þetta litla einlæga, saklausa barn :( Ég var mikið að pæla í að hlaupa aftur niður og reyna finna hana til að henda í hana öllum þeim lauslega pening sem ég átti, en gerði það ekki. Og núna höntar þessi saklausi svipur á henni dag og nótt :(
...vá hvað maður er kominn með vont carma maður úff! Svo er líka spurning um hversu lengi vont getur versnað hehe en svona er þetta...
Mér líður allavega hræðilega í hjartanu útaf þessu :(

En burtséð frá þessu þá vona ég að helgin verði alveg spreng mögnuð hjá mér og ykkur öllum ;)



Að lokum vill ég koma einu á hreint....hérna í vikunni lenti ég í smá rifrildi við góða vinkonu mína. Málið var hvort væri réttara að segja PYLSA eða PULSA.
Ég hélt því fram að það væri réttara að segja PYLSA... Nú langar mig bara að segja fólki sem heldur því fram að Pulsa sé réttara að lesa þessa grein:
http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3355

Nú verðið þið þarna sem búið á frekar sunnarlega á landinu góða að fara sætta ykkur við þetta....eða bara lifa áfram í lygi....sorry :D PYLSA hehehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 14:42:09 / kalli

Helvítis runnariðlarar

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=227433

Ég heimta comment á þetta uppátæki hjá Vinstri-Grænum!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 20:09:47 / kalli

Helgin



Jæja krakkar, alltaf styttist í Sálina ;)

En ég ákvað að sína smá lit og skella hérna inn nokkrum línum...
Helgin var bara sæmileg....fór til Hólmars og Guddu að renna niður nokkrum baukum. Þar var auðvitað alveg rudda stemming ;) Svo var bara skellt sér aðeins á rúntinn og svona...

Á laugardaginn vaknaði ég með þennan sóða hausverk :/...borðaði grautinn og fékk mér eina parkó til að reyna losna við þenna óbotna morgungest.
Seinna um daginn fer ég til Helga bró að horfa á Inter – Milan leikinn.....ligg í sófanum og stend svo frekar snöggt upp til að draga fyrir gluggann. Það heppnaðist svona glimrandi vel að það bara dró fyrir augun á mér og ég sá bara stjörnur...(...ég sé aðeins stjörnur hér í nótt....hehe)...og ég hélt það myndi bara líða yfir mig. Svo gerðist það sama þegar ég stóð upp þegar leikurinn var búinn..

Ég hélt þá auðvitað að mig vantaði bara sykur í blóðið og svona og fékk mér að borða...

Svo var fótbolta tímanum okkar á Þelamörk seinkað til kl:20 út af einhverju móti.
Mætti þangað um kvöldið og strax í upphitun þegar við erum að láta nokkur skot vaða á rammann, þá byrjar litla hjartadruslan í mér að pumpa á milljón og ég var með geggjaðan sting í brjóstkassanum sem leiddi stundum niður í bak.
Svo eftir tímann og mikil sársaukafull hlaup þá dró aðeins úr þessu...
Það var svo party um kvöldið hjá einum í fótboltanum....en ég ákvað bara að vera driver og sleppa því að drekka ef þetta vesen ætlaði að halda eitthvað áfram...

Svo um kvöldið byrjaði pumpan aftur að slá heavy og ég endaði með því að fara heim um kl:00 og skella í mig 2 parkó og fór að sofa :D

Hef svo lítið fundið fyrir þessu núna :D

En ég er að hugsa um að segja þetta gott í bili....hver veit nema ég fái hjartaáfall ef ég skrifa eitthvað meira :D

blebb


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 19:31:48 / kalli

Incubus, ferðasaga

Jæja ég er ekki viss um að þið viljið vita hvað fór fram í litlu íbúðinni í Mosfellsbæ :/...hehe nei nei ég er að djóka :D Allt innan siðferðismarka þar....eða svona...:D

Ferðin hófst 12:30 þegar við fórum úr bænum...og eins og mér einum er lagið þá lét ég eins og spastískur arabi við hann Sigga minn...fékk oft að finna fyrir því hehe :D En hann vissi alveg hvað hann var að fara útí ;)

Stoppuðum á Blönduós og fengu okkur PYLSU (ekki Pulsu) og Siggi var nærri því búinn að taka feil á tómatsósuflöskunni og chillisósunni....en ég varaði hann auðvitað við af því að ég er svo góður vini....en hefði samt bara átt að leyfa honum að fá sér chilli heheh

Næsta stopp var hjá ömmu í Borgarnesi sem beið eftir okkur með heitan rétt, snúð, möffins og kleinur....ussss :D

En svo þegar við komum í Mosfellsbæinn þá hófumst við hana við að reyna finna hvar þessi íbúð var sem við fengum. Eftir þó nokkra leit þá fundum við hana á síðasta staðnum sem við leituðum hehehe :D

Svo þegar inn á ganginn á blokkinni var komið þá voru allar hurðirnar ómerktar....og Siggi var ekki alveg 100% viss hvaða hurð þetta væri....ég sagðist ætla berja hann ef hann væri svo að reyna opna vitlausa hurð...en sem betur fer þá veðjaði hann á þá réttu :D
Það var búið að segja við Sigga að það væri 1 herbergi þarna og 1 svefnsófi....svo þegar við komum inn þá drápumst við úr hlátri :D Þarna var stofan með þessum svefnsófa...og það sem skildi að það og tvíbreiða rúmið var lítið ódýrt bambus-skilrúm hehehe massa privacy í gangi þar hehehe NOT :D
Svo fór Siggi að skoða í skápana og opnaði eina hurðina á viftuna sem var fyrir ofan eldavélina...og hún hrundi niður hehehe :D snilld

En svo sömdum við um það að ég myndi vera á svefnsófanum fyrrinóttina og rúminu nóttina eftir...

Svo í mestu geðveikinni tók ég smá stripp fyrir Sigga eftir sturtuna mína....annað eins ánægju glott hef ég bara ekki séð....og hefði ég ekki forðað mér aftur inná klósett þá hefði hann örugglega bara tekið netta endurgerð á Brokeback á mér hehehe :D
En svo þegar við fórum á KFC að fá okkur að borða þá fékk Siggi eitt enn hláturskastið þegar ég fór inná vitlaust bílaplan hehehe...ég var sko að gera góða hluti þarna fólk ;)
En svo um kvöldið var bara horft á myndir af flakkaranum og svona....reyndi svo að sofna í svefnsófanum sem var hörmulegur!!!! Enda þegar Siggi fór á Bifröst um morguninn stökk ég strax uppí rúmið þegar hann var farinn og sofnaði ;)

Á laugardeginum var svo farið í Kringluna...sem ég geri örugglega ekki fljótlega aftur....tók okkur svona 30 mín að finna bílastæði og svo var bara ekki verandi þarna inni!! En eins og vanalega þá sá maður alveg helling af akureyringum þarna....góðum og slæmum :D
En svo eftir að við höfðum rennt niður ágætri flatböku frá PizzaBæ...renndum við á tónleikana.
Mínus hitaði upp og voru bara ágætir...eftir þá var byrjað að stilla upp fyrir kóngana í Incubus, sem tók sinn tíma.....en svo loks byrjuðu þeir og það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið fokking snilld!!!!!!
Eftir tónleikana var mig sko bara farið að hlakka til að sofa í rúminu....En hvað haldið þið......bölvaður gölturinn hann Siggi hraut svona agalega um nóttina....var mikið að
 pæla í að ýta skilrúminu yfir hann hehehe en ég náði að vísu alveg að sofna og svona ;)

Heimferðin var svo líka full af spassaköstum hjá mér :D....Ég sagði þegar við vorum í Borgarnesi, að ég ætlaði sko að stoppa á Blönduós og fá mér stóran sheik og okkur var búið að dauðlanga í sheik alla leiðina...svo þegar við komum að búðarborðinu þá var okkur bent á ísvélina sem var í henglum :D....þannig að það var ekkert úr því :D

En ég held að það sé allt komið :D....endilega gefið mér 1 eða 2 comment á þetta ;)
Takk fyrir mig, lopapeysan kveður ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Fr...æðandi
Vinnan